Hoppa yfir valmynd
26. september 2005 Matvælaráðuneytið

Fiskistofa flytur að Dalshrauni 1, Hafnarfirði

Fréttatilkynning

 

 

 

Frá og með næstu áramótum flyst starfsemi Fiskistofu til Hafnarfjarðar. 

 

Frá stofnun Fiskistofu 1992 hefur hún haft aðsetur að Höfn við Ingólfsstræti, Reykjavík.  Það hús hefur frá upphafi verið í eigu Fiskifélags Íslands en hefur nú verið selt.  Auglýst var eftir leiguhúsnæði fyrir Fiskistofu og bárust nokkur tilboð. Tilboð frá Risi ehf., um leigu á húsnæði við Dalshraun 1, Hafnarfirði, var  metið hagstæðast og skrifuðu samningsaðilar í dag undir samning um húsaleigu fyrir Fiskistofu í umræddu húsnæði.

 

Sjávarútvegsráðuneytið

26. september 2005



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum