Nýr fjármálaráðherra tekinn við
Á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í dag 27. september 2005 lét Árni M. Mathiesen af embætti sjávarútvegsráðherra og tók við embætti fjármálaráðherra af Geir H. Haarde sem tók við embætti utanríkisráðherra.
Meðfylgjandi er mynd sem tekin var í húsnæði fjármálaráðuneytisins síðdegi í dag. Þar má sjá nýjan ráðherra taka við lyklavöldunum.
Árni M. Mathiesen tekur við lyklavöldunum í fjármálaráðuneytinu af Geir H. Haarde