Hoppa yfir valmynd
7. október 2005 Matvælaráðuneytið

Fundur samtaka fiskvinnslustöðva 7. október 2005

Fréttatilkynning

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra gerði hátt gengi krónunnar og viðbrögð við því að meginumræðuefni í ræðu sinni á fundi samtaka fiskvinnslustöðva í dag. Einar sagði varnirnar vera að bresta í sjávarútveginum vegna gengisins og enginn gæti leyft sér að líta framhjá því. Fyrirsjáanlegt hefði verið að raungengi myndi hækka með auknum umsvifum en staða krónunnar nú yrði ekki skýrð með þeim. Viðfangsefnið sem fyrir lægi væri þríþætt, að tryggja jafnvægi í þjóðarbúskapnum, treysta stöðu atvinnulífsins og tryggja lága verðbólgu. Lækka þyfti raungengi krónunnar. Einar sagðist óttast að sú leið að lækka eingöngu stýrivexti Seðlabankans við núverandi aðstæður gæti kallað á víxlverkun kaupgjalds og verðlags. Vísaði hann á tvær leiðir til þess að stuðla að lækkun raungengis; að draga úr umfangi lánastarfsemi og lækka heildarútlán og huga að því að styrkja enn frekar gjaldeyrisvarasjóð landsmanna. Hann benti á að krafan um lækkun raungengis kemur ekki einungis frá útflutningsatvinnugreinunum, hún kemur einnig frá verkalýðshreyfingunni og fulltrúum allra stjórnmálaflokka.

Einar ræddi einnig afkomu rækjuvinnslu og önnur brýn hagsmunamál fiskvinnslunnar svo sem framlög til rannsókna og þróunar og aðgang að fiskmörkuðum.

 

Ræða sjávarútvegsráðherra

 

 

Sjávarútvegsráðuneytið, 7.október 2005

 

 

 

 

 

 

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum