Hoppa yfir valmynd
21. október 2005 Matvælaráðuneytið

30 ára afmæli kvennafrídagsins

Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti

Fréttatilkynning

Nr. 24/2005

 

Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur ákveðið að konur í ráðuneytum iðnaðar og viðskipta fái svigrúm til að taka þátt í viðburðum í tilefni af 30 ára afmæli kvennafrídagsins, mánudaginn 24. október nk. Með því eru konur hvattar til þátttöku. Þá hefur Valgerður sent stofnunum ráðuneytanna erindi með hvatningu til forstöðumanna um að veita slíkt svigrúm á viðkomandi vinnustöðum og grípa til ráðstafana vegna fjarveru kvenna þann dag.

 

Reykjavík, 20. október 2005.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum