Dagskrá Ferðamálaráðstefnunnar 2005 er eftirfarandi:
Ávörp samgönguráðherra og borgarstjóra
Ráðstefnan hefst kl. 9 fimmtudaginn 27. október með skráningu og afhendingu gagna. Að lokinni setningu flytja ávörp þau Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Steinunn V. Óskarsdóttir borgarstjóri.
Samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu
Þá er komið að Hannesi Smárasyni, stjórnarformanni FL Group, sem flytur inngangserindi ráðstefnunnar undir yfirskriftinni „Samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu.” Næst flytur erindi Anneke Dekker, framkvæmdastjóri Island Tours Hollandi, og fjallar um markaðslega samkeppnishæfni Íslands, frá sjónarhorni erlends seljanda. Menningarleg samkeppnishæfni Íslands er síðan yfirskrift næsta erindis sem Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri flytur. Að þessu loknu verða umræður og fyrirspurnir áður en tekið verður hádegishlé.
Ráðstefnu- og tónlistarhús, ný Ferðamálastofa og lokaverkefnisverðlaun
Að loknu hádegishléi verður kynning á nýju ráðstefnu- og tónlistarhúsi í Reykjavík sem Stefán Hermannsson, framkvæmdastjóri Austurhafnar ehf., annast. Þá mun Magnús Oddsson, ferðamálastjóri fara yfir væntanlegar breytingar á Ferðamálaráði með stofnun Ferðamálastofu um næstu áramót. Afhending lokaverkefnisverðlauna Ferðamálaseturs Íslands fyrir árið 2005 fylgir í kjölfarið og þá almennar umræður og afgreiðsla ályktana. Ráðstefnuslit eru áætluð kl 16:00. Ráðstefnugjald er 9.000 kr.
Móttakna, kvöldverður og afhending umhverfisverðlauna
Móttaka í boði samgönguráðherra og Höfuðborgarstofu hefst í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, kl. 18 en safnið opnar kl 17:00 fyrir þá sem vilja kynna sér sýningar safnsins. Strætó mun aka gestum frá Listasafni Reykjavíkur að Hótel Sögu þar sem kvöldverður og skemmtun hefst kl. 20. Þar verða samkvæmt venju afhent umhverfisverðlaun Ferðamálaráðs Íslands fyrir árið 2005. Verð fyrir kvöldverð er 4.900 kr.
Kynning á ferðaþjónustu svæðisins
Daginn eftir, þ.e. föstudaginn 28. október, verður vettvangsferð og kynning á ferðaþjónustu svæðisins. Hefst hún kl. 10 og verður farið frá Hótel Sögu.
Skráning og nánari upplýsingar á vef Ferðamálaráðs.
|