Hoppa yfir valmynd
31. október 2005 Matvælaráðuneytið

Úthlutun aflaheimilda

Úthlutun aflaheimilda fyrir árið 2006 úr stofni Austur-Atlantshafs bláuggatúnfisks

Ísland hefur verið aðili að Atlantshafs túnfiskveiðiráðinu (ICCAT) frá árinu 2002. Samkvæmt stjórnunarráðstöfunum ráðsins, sem Ísland hefur samþykkt, koma í hlut Íslands aflaheimildir fyrir árið 2006 sem nema 60 tonnum af bláuggatúnfiski. Um er að ræða veiðiheimildir samkvæmt samþykkt ICCAT nr. 02-8, úr stofni Austur-Atlantshafs bláuggatúnfisks (e. bluefin tuna in the East Atlantic and the Mediterranean).

Útgerðir sem áhuga hafa á að taka þátt í þessum veiðum skulu sækja um veiðiheimildir til sjávarútvegsráðuneytisins fyrir 1. desember næstkomandi.

Í umsókninni skal koma fram áætlun varðandi veiðarnar þar sem fram komi m.a. veiðitímabil, veiðisvæði, veiðiaðferð og nýting afurða. Ráðuneytið áskilur sér rétt til þess að hafna umsóknum sé ljóst að viðkomandi skip hafi ekki búnað til veiðanna eða að það sé fyrirséð að þau muni af öðrum ástæðum ekki stunda þær.

Reglugerð


Sjávarútvegsráðuneytið



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum