Hoppa yfir valmynd
1. nóvember 2005 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Þátttaka er lífsstíll - Ungt fólk á Suðurlandi

Menntamálaráðuneytið, Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, Héraðssambandið Skarphéðinn, og Æskulýðsráð ríkisins efna til málþings, föstudaginn 4. nóvember 2005 um mikilvægi íþrótta-,félags- og tómstundastarfs fyrir ungt fólk undir yfirskriftinni

Menntamálaráðuneytið, Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, Héraðssambandið Skarphéðinn og Æskulýðsráð ríkisins efna til málþings föstudaginn 4. nóvember 2005 um mikilvægi íþrótta-, félags- og tómstundastarfs fyrir ungt fólk undir yfirskriftinni

„Þátttaka er lífsstíll - Ungt fólk á Suðurlandi"

Málþingið verður haldið í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi föstudaginn 4. nóvember nk. og stendur frá kl. 13:15-16:30.

Dagskrá málþingsins skiptist í megindráttum í tvennt, framsögur og umræður í þremur umræðuhópum og ungmennasmiðju sem munu í lok dagsins kynna niðurstöður sínar. Afar mikilvægt er að sjónarmið leiðandi aðila í starfi ungs fólks komi fram í umræðunni sem og ekki síður raddir ungmennanna sjálfra.

Ávarp flytur Gísli Páll Pálsson, formaður, Héraðssambandsins Skarphéðins.

Fyrirlesarar á málþinginu eru Einar Bárðarson, umboðsmaður frá Selfossi, Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri SASS, Sædís Íva Elíasdóttir, formaður Ungmennasambands Vestur Skaftafellssýslu, Helga Sæmundsdóttir, nemandi í Menntaskólanum á Laugarvatni og Fjóla Dögg Sigurðardóttir nemandi í Fjölbrautarskóla Suðurlands. Ráðstefnustjóri er Margrét Erlingsdótttir formaður skólanefndar Árborgar.

Til málþingsins eru sérstaklega boðaðar bæjar- og sveitarstjórnir, bæjar- og sveitarstjórar, íþrótta-, æskulýðs- og tómstundanefndir og -ráð sveitarfélaga; starfsmenn sveitarfélaga, sem vinna að íþrótta- og tómstundamálum fyrir ungt fólk, og samtök ungs fólks í sveitarfélögum.

Enn fremur er félögum og félagasamtökum, sem vinna að íþrótta- og félagsmálum fyrir ungt fólk á Suðurlandi, sérstaklega boðið að taka þátt í málþinginu.

Þá er allt ungt fólk á Suðurlandi sérstaklega hvatt til þess að taka þátt í málþinginu.

Dagskrá málþingsins er á vef HSK, www.hsk.is Sérstök athygli er vakin á því að þess er óskað að þátttaka tilkynnist fyrir miðvikudaginn 2. nóvember nk. með því að senda tölvupóst á póstfangið [email protected]. Nánari upplýsingar um málþingið er hægt að nálgast á www.hsk.is eða í síma 482-1189.

Ekkert þátttökugjald er á málþingið og allir velkomnir

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum