Könnun á menntun dönsku- ensku- og íslenskukennara í grunnskólum
Menntamálaráðuneytið hefur ákveðið að gera könnun á menntun dönsku-, ensku- og íslenskukennara í grunnskólum skólaárið 2005-2006.
Til skólaskrifstofa
Menntamálaráðuneytið hefur ákveðið að gera könnun á menntun dönsku-, ensku- og íslenskukennara í grunnskólum skólaárið 2005-2006. Er í þessu sambandi vísað til reglugerðar nr. 384/1996 um upplýsingaskyldu sveitarfélaga um skólahald.
Könnunin er m.a. liður í upplýsingaöflun ráðuneytisins vegna fyrirhugaðrar breytingar á námsskipan til stúdentsprófs og endurmenntunar grunnskólakennara í þessum námsgreinum í tengslum við þær. Jafnframt tengist könnunin úttekt á enskukennslu í grunnskólum sem unnið er að á þessu skólaári.
Hjálagt fylgir sýniseintak af spurningalista sem ráðuneytið mun á næstu dögum senda beint til skólastjóra allra grunnskóla á rafrænu formi með ósk um svör fyrir 21. nóvember nk.