Hoppa yfir valmynd
17. nóvember 2005 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til háskólanáms í Danmörku 2006-2007

Stjórnvöld í Danmörku bjóða fram fjóra styrki til handa Íslendingum til háskólanáms í Danmörku skólaárið 2006-2007.

Stjórnvöld í Danmörku bjóða fram fjóra styrki til handa Íslendingum til háskólanáms í Danmörku skólaárið 2006-2007. Styrkirnir eru ætlaðir þeim sem komnir eru nokkuð áleiðis í háskólanámi og eru miðaðir við 9 mánaða námsdvöl, en til greina kemur að skipta þeim ef henta þykir. Styrkfjárhæðin er 5.000 d.kr. á mánuði. Umsóknarfrestur er til 4. janúar 2006.

Umsóknir um ofangreinda styrki, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást, ásamt nánari upplýsingum. Umsóknareyðublöð og upplýsingar er einnig hægt að nálgast á vefsíðu CIRIUS í Danmörku: www.ciriusonline.dk/default.asp?id=829



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum