Hoppa yfir valmynd
18. nóvember 2005 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til háskólanáms á Spáni 2006-2007

Spænsk stjórnvöld bjóða fram styrki til náms á Spáni.

Spænsk stjórnvöld bjóða fram styrki til náms á Spáni.

Um er að ræða:

1. Styrki til ársdvalar við framhaldsnám í spænsku og menningu Spánar í háskóla á Spáni. Styrkirnir eru ætlaðir nemendum sem lokið hafa BA-prófi og ekki hafa spænsku að móðurmáli. (Programa I.A.)

2. Mánaðarstyrkir til sumarnáms í spænsku og menningu Spánar. (Programa I.B.)

3. Þriggja mánaða styrki fyrir starfandi spænskukennara. (Programa I.C.)

4. Styrki fyrir erlenda sendifulltrúa og þá sem lokið hafa háskólaprófi til náms í alþjóðasamskiptum við Escuela Diplomática de Madrid. (Programa II.C.)

Allar upplýsingar og umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á vef hlutaðeigandi ráðuneytis á Spáni www.becasmae.es Frestur til að skila inn umsóknum er 15. desember 2005.

Einnig veitir vararæðismaður Spánar á Íslandi, Margrét Jónsdóttir, dósent við Háskólann í Reykjavík, nánari upplýsingar (netfang: [email protected]). Um leið og umsækjendur senda umsóknir sínar, sem sendar skulu á rafrænu formi, óskast það tilkynnt Margréti.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum