Hoppa yfir valmynd
23. nóvember 2005 Dómsmálaráðuneytið

Landhelgisgæsla Íslands - Endurnýjun skips og flugvélar

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, kynnti ríkisstjórn í morgun að farið verði í forval á skipasmíðastöðvum vegna smíði nýs varðskips fyrir Landhelgisgæslu Íslands.

Fréttatilkynning
37/2005


Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, kynnti ríkisstjórn í morgun að farið verði í forval á skipasmíðastöðvum sem uppfylltu ákveðin skilyrði m.t.t. rekstrarstöðu og reynslu af sambærilegum verkefnum vegna smíði nýs varðskips fyrir Landhelgisgæslu Íslands. Í kjölfar forvals verði valdir 5-10 aðilar sem síðan fái að bjóða í smíði á nýju fjölnota varðskipi.

Helstu kröfur til nýs varðskips eru, að það geti sinnt eftirliti í efnahagslögsögu Íslendinga, sinnt mengunarvörnum, afgreitt eldsneyti til björgunarþyrlna á flugi og brugðist við í þágu almannavarna hvar sem er á landinu. Skipið verður einnig að geta stutt við viðbrögð og varnir gegn hryðjuverkaógn, nýst til samvinnu við sérsveit lögreglunnar og tollgæslu til varnar smygli á fólki og fíkniefnum og sinnt björgunarstörfum hverskonar. Í björgunarhlutverkinu felst m.a að draga skip og báta og við framkvæmd þess þarf að miða við, að umferð stórra flutningaskipa stóraukist um efnahagslögsöguna og við strendur landsins á næstu árum.

Tímaáætlun verkefnisins er sem hér segir:

  • Forval auglýst á EES            24. nóvember nk.
  • Opnun forvalsgagna               12. janúar 2006
  • Þarfalýsing LHG lögð fram    15. febrúar 2006
  • Opnun verðtilboða                   14. maí 2006

Gert er ráð fyrir að samningagerð verði lokið í júní 2006 og að nýtt fjölnota varðskip Landhelgisgæslu Íslands verði afhent innan 30 mánaða frá undirritun samnings.

Vinnuhópur Landhelgisgæslu Íslands hefur undanfarna mánuði unnið að tæknilýsingu fyrir útboð á nýrri flugvél fyrir gæsluna. Leitað hefur verið til Försvarets Materialverk (FMV) í Svíþjóð, en FMV hafði yfirumsjón með undirbúningi og framkvæmd útboðs sænsku strandgæslunnar á þremur eftirlitsflugvélum.

Tímaáætlun verkefnisins er sem hér segir:

  • Drög (1. útg) tilbúin             15. des. 2005
  • Útboð auglýst á EES           22. des. 2005
  • Tilboð opnuð þann                8. mars 2006
  • Niðurstaða útboðs                8. maí 2006
  • Samningur undirritaður        7. júní 2006
  • Afhending vélar til LHG         7. des. 2007


Reykjavík, 23. nóvember 2005



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta