Hoppa yfir valmynd
24. nóvember 2005 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Sérfræðingur á skrifstofu menntamála

Menntamálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á skrifstofu menntamála (mats- og eftirlitsdeild). Um er að ræða fullt starf.

Menntamálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á skrifstofu menntamála (mats- og eftirlitsdeild). Um er að ræða fullt starf.

Leitað er að háskólamenntuðum einstaklingi með reynslu og þekkingu á íslenska menntakerfinu, einkum starfsemi leik- og grunnskóla. Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, góð kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli svo og góð þekking á Excel og SPSS eru nauðsynlegir kostir ásamt ritfærni og hæfni í mannlegum samskiptum.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst. Laun greiðast samkvæmt launakerfi Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins. Nánari upplýsingar veitir Margrét Harðardóttir deildarstjóri mats- og eftirlitsdeildar.

Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 16. desember 2005.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum