Ráðstefna eingöngu ætluð körlum
Karlaráðstefna um jafnréttismál verður haldin í Salnum í Kópavogi, fimmtudaginn 1. desember næstkomandi frá kl. 9-12. Ráðstefnan er eingöngu ætluð körlum, með þeirri undantekningu að frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, mun ávarpa ráðstefnuna og sitja hana sem verndari og heiðursgestur. Karlar eru hins vegar hvattir til að sækja ráðstefnuna og er aðgangur ókeypis meðan húsrúm leyfir.
Árni Magnússon félagsmálaráðherra boðar til karlaráðstefnunnar. Að undirbúningi hennar með ráðherra hefur komið hópur manna sem í sitja Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, Gunnar Páll Pálsson, formaður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, Ingólfur V. Gíslason, sviðsstjóri á Jafnréttisstofu, Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins, og Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst. Allir munu þeir flytja framsöguerindi á ráðstefnunni og einnig mun Þráinn Bertelsson rithöfundur flytja erindi.
Egill Helgason sjónvarpsmaður stýrir tvennum pallborðsumræðum á karlaráðstefnunni. Á öðru pallborðinu sitja ungir karlmenn úr stjórnmálaflokkunum þeir Bolli Thoroddsen, formaður Heimdallar, Egill Arnar Sigurþórsson, varaformaður Sambands ungra framsóknarmanna, Jens Sigurðsson, framkvæmdastjóri Ungra jafnaðarmanna, Emil Hjörvar Petersen, varaformaður Ungra vinstri grænna og formaður VG í Kópavogi, og Andri Sigurðsson, í stjórn Ungra frjálslyndra. Á hinu pallborðinu sitja reynsluboltar sem unnið hafa að ýmsum þáttum sem snúa að jafnréttismálum frá sjónarhóli karla. Þeir eru séra Bragi Skúlason, Sigurður Svavarsson, bókaútgefandi og fyrrverandi formaður karlanefndar Jafnréttisráðs, Hafsteinn Karlsson skólastjóri, Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar verslunar, og Hjálmar G. Sigmarsson, fulltrúi karlahóps Femínistafélags Íslands.
Þórhallur Gunnarsson sjónvarpsmaður verður ráðstefnustjóri.
Dagskrá karlaráðstefnunnar er eftirfarandi:
· 9:15 – 9:20 Ráðstefnan sett: Árni Magnússon, félagsmálaráðherra
· 9:20 – 9:30 Ávarp frú Vigdísar Finnbogadóttur
· 9:30 – 10:20 Framsöguerindi:
Atvinnulífið græðir á jafnrétti. Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins Jafnrétti á fjármálamarkaði. Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka Jafnrétti er allra hagur. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR Á hverfanda hveli. Ingólfur V. Gíslason, sviðsstjóri hjá Jafnréttisstofu Láta karlar verkin tala? Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins Veldur menntun misrétti? Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst
· 10:20 – 10:40 Kaffihlé
· 10:40 – 11:00 Þráinn Bertelsson rithöfundur.
· 11:00 – 11:51 Tvennar pallborðsumræður undir stjórn Egils Helgasonar sjónvarpsmanns.
- Ungir karlar úr stjórnmálaflokkunum
- Reynsluboltar úr jafnréttismálum
· 11:51 - 11:59 Ráðstefnuslit – Árni Magnússon félagsmálaráðherra
Ráðstefnustjóri Þórhallur Gunnarsson sjónvarpsmaður
Nánari upplýsingar um framsöguerindi á Karlaráðstefnu um jafnréttismál, Salnum í Kópavogi, 1. desember 2005, frá kl. 9–12.
Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins: Atvinnulífið græðir á jafnrétti
Mismunun í atvinnulífi felur í sér sóun. Hvaða þjóðfélagsþættir koma í veg fyrir jafnrétti á vinnumarkaði og hvernig er hægt að jafna þá þætti?
Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka: Jafnrétti á fjármálamarkaði.
Hver er staða jafnréttismála á fjármálamarkaði. Hvað er í veginum?
Gunnar Páll Pálsson, formaður VR: Jafnrétti er allra hagur
Jafnrétti á vinnumarkaði frá sjónarhóli verkalýðshreyfingarinnar.
Ingólfur V. Gíslason, sérfræðingur á Jafnréttisstofu: Á hverfanda hveli
Litið yfir þróun í samskiptum kynjanna síðustu áratugi og spáð
í framtíðina.
Ólafur Þ. Stephensen, aðstoðarritstjóri: Láta karlar verkin tala?
Karlar tala lítið um jafnréttismál en þeir hafa tekið möguleika á
fæðingarorlofi opnum örmum. Hvað þýðir fæðingarorlof feðra fyrir karla,
konur, börn og samfélag?
Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst: Veldur menntun misrétti?
Um menntakerfi, jafnrétti, samfélag og kynjakvóta.
Nánari upplýsingar um karlaráðstefnuna veita Ingi Valur Jóhannsson, deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu, og Pétur Gunnarsson, upplýsingafulltrúi í félagsmálaráðuneytinu, í síma: 545-8100 og Pétur í síma: 863-0306.