Hoppa yfir valmynd
9. desember 2005 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Deildarstjóri háskóladeildar

Menntamálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf deildarstjóra háskóladeildar á skrifstofu menntamála.

Menntamálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf deildarstjóra háskóladeildar á skrifstofu menntamála. Um er að ræða fullt starf.

Leitað er að háskólamenntuðum einstaklingi með mikla reynslu og þekkingu á málefnum háskólastigsins hér á landi sem erlendis. Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og góð kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli eru nauðsynlegir kostir ásamt ritfærni og hæfni í mannlegum samskiptum.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst. Laun greiðast samkvæmt launakerfi Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins. Nánari upplýsingar veita Sólrún Jensdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu menntamála, og Stefán Stefánsson, deildarstjóri háskóladeildar.

Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil, merktar deildarstjóri, sendist menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.

Umsóknarfrestur er til 6. janúar 2006.

Menntamálaráðuneyti, 9. desember 2005.

menntamalaraduneyti.is



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum