Hoppa yfir valmynd
19. desember 2005 Dómsmálaráðuneytið

Námskeið til undirbúnings prófi til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður

Prófnefnd um próf til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður hefur ákveðið að námskeið verði haldið á fyrri hluta árs 2006. Prófraunin skiptist í tvo hluta, auk verklegrar prófraunar.

Prófnefnd samkvæmt reglugerð nr. 1095/2005 um próf til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður, sbr. lög nr. 77/1998 um lögmenn og lög nr. 93/2004, hefur ákveðið að námskeið verði haldið á fyrri hluta árs 2006. Prófraunin skiptist í tvo hluta, auk verklegrar prófraunar.

Kennslugreinar í fyrri hluta eru: Einkamálaréttarfar, sakamálaréttarfar, fullnustu­réttarfar, samning lögfræðilegrar álitsgerðar og lögfræðileg skjalagerð. Kennslu­greinar í síðari hluta eru: Réttindi og skyldur lögmanna, þar á meðal siðareglur lögmanna og þóknun fyrir lögmannsstörf, málflutningur og önnur störf lög­manna, svo sem samningsgerð og meðferð stjórnsýslumála. Í tengslum við nám­skeiðið fer fram kynning á rekstri lögmannsstofa og starfsemi Lögmannafélags Íslands og úrskurðarnefndar lögmanna.Auk kennslu í fyrri og síðari hluta er verklegur hluti, sem felst í aðstoð við flutning eins máls fyrir héraðsdómi. Kennsla fer fram í kennslusal Lögmannafélags Íslands að Álftamýri 9, 108 Reykjavík.

Stefnt er að því að kennsla í fyrri hluta fari fram vikuna 6.-11. febrúar og vikuna 27. febrúar til 4. mars 2006. (Tímar frá 09:15-12:00 og frá 13:15 eða 14:15-17:00 eða 18:00) Jafnframt er stefnt að því að próf í fyrri hluta námskeiðsins verði haldin 16.-18. mars og 23.-25. mars 2006. Nánari upplýsingar um fjölda kennslustunda og fyrirkomulag kennslu verða kynntar síðar.

Stefnt er að því að kennsla í síðari hluta fari fram vikuna 24.-29. apríl og 8.-13. maí 2006.

Verklega prófraun skal þreyta eftir að fyrra hluta prófi er lokið og eigi síðar en einu ári eftir að lokið er síðari hluta prófi.

Gjald fyrir þátttöku á fyrri hluta prófraunar er kr. 150.000 og greiðist við skrán­ingu. Gjald fyrir síðari hluta verður ákveðið síðar. Prófgjald er innifalið í nám­skeiðsgjaldi.

Skráning fer fram á skrifstofu Lögmannafélags Íslands að Álftamýri 9, Reykja­vík. Sími 568 5620. Fax 568 7057, en einnig er hægt að ganga frá skráningu með tölvupósti á netfangið: [email protected]. Við skráningu á námskeiðið þarf að til­greina nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer (heimasíma, vinnusíma og gsm-síma), auk netfangs. Við skráningu skal jafnframt leggja fram afrit prófskírteinis eða vottorð háskóla til staðfestingar því að umsækjandi hafi lokið fullnaðarnámi í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi.

Frestur til að skrá sig á námskeið er til 20. janúar 2006.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 16. desember 2005



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum