Hoppa yfir valmynd
20. desember 2005 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Deildarstjóri í fjölmiðladeild

Menntamálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf deildarstjóra á skrifstofu menningarmála.

Menntamálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf deildarstjóra á skrifstofu menningarmála. Um er að ræða fullt starf.

Leitað er að háskólamenntuðum einstaklingi með staðgóða þekkingu á málefnum fjölmiðla, margmiðlum og tengslum fjölmiðla og fjarskipta, hér á landi sem erlendis. Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og góð kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli eru nauðsynlegir kostir ásamt ritfærni og hæfni í mannlegum samskiptum.

Nauðsynlegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega. Laun greiðast samkvæmt launakerfi Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins. Nánari upplýsingar veitir Karitas H. Gunnarsdóttir skrifstofustjóri skrifstofu menningarmála.

Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil, merktar deildarstjóri í fjölmiðladeild, sendist menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 4. janúar 2006.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum