Hoppa yfir valmynd
20. desember 2005 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Staðgreiðsluhlutfall árið 2006 lækkar um 1% vegna lækkunar tekjuskatts

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 23/2005

Fjármálaráðuneytið ákveður staðgreiðsluhlutfall hvers árs og er það samtala af tekjuskattshlutfalli samkvæmt lögum um tekjuskatt og útsvarshlutfalli eins og það er að meðaltali samkvæmt ákvörðunum sveitarstjórna.

Tekjuskattshlutfall á árinu 2006 verður 23,75% sem er lækkun um 1% frá yfirstandandi ári. Meðalútsvar á árinu 2006 samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 12,97% en þetta hlutfall er 12,98% á yfirstandandi ári. Meðalútsvarslækkun milli ára er því 0,01%. Staðgreiðsluhlutfall á árinu 2006 verður 36,72% samanborið við 37,73% á þessu ári. Lækkun á staðgreiðsluhlutfalli milli ára verður því 1,01%.

Sveitarfélögin geta ákveðið útsvar á bilinu 11,24% til 13,03%. Af 101 sveitarfélagi ætla 74 þeirra að innheimta hámarksútsvar en 3 sveitarfélög verða með lágmarksútsvar.

Áætlað er að á árinu 2006 innheimtist um 148 milljarðar króna fyrir ríki og sveitarfélög með staðgreiðslu opinberra gjalda. Þar af renna um 78 milljarðar króna til sveitarfélaga en um 70 milljarðar króna til ríkissjóðs.


Fjármálaráðuneytinu 20. desember 2005



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta