Ríkisráðsfundi 31. desember 2005 lokið
Frá ríkisráðsritara
Á fundi ríkisráðs á Bessastöðum í dag voru endurstaðfestar ýmsar afgreiðslur, sem fram höfðu farið utan ríkisráðsfundar. Þá voru staðfest forsetabréf um hina íslensku fálkaorðu, forsetabréf um starfsháttu orðunefndar og forsetabréf um afreksmerki hins íslenska lýðveldis.
Reykjavík 31. desember 2005