Auglýsing um breytingu á lágmarksupphæð stofnfjár sjóðs eða stofnunar sem starfar samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.
Samkvæmt 2. gr. laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá nr. 19/1988 skal stofnfé sjóðs eða stofnunar árið 2006 vera 647.000,- kr. hið minnsta.
Auglýsing þessi tekur þegar gildi.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 4. janúar 2006.
F. h. r.
Hjalti Zóphóníasson / Bryndís Helgadóttir