Leyfi ráðherra
Vegna veikinda eiginkonu sinnar verður Árni Magnússon félagsmálaráðherra í leyfi frá störfum næstu vikur. Áætlað er að ráðherrann taki aftur til starfa í byrjun febrúar.
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra gegnir embætti félagsmálaráðherra í fjarveru Árna en Sæunn Stefánsdóttir varaþingmaður tekur sæti Árna á Alþingi.