Sameining sveitarfélaga í Þingeyjarsýslu
Samstarfsnefnd um sameiningu Húsavíkurbæjar, Kelduneshrepps, Öxarfjarðarhrepps og Raufarhafnarhrepps hefur gefið út kynningarbækling um sameiningu sveitarfélaganna. Í bæklingnum er áhersla lögð á að kynna sjónarmið íbúa til sameiningar sveitarfélaganna.
Sem kunnugt er samþykktu íbúar sveitarfélaganna fjögurra sameiningu sjö sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum síðastliðið haust.
Atkvæðagreiðsla um sameiningu sveitarfélaganna fer fram laugardaginn 21. janúar næstkomandi.
Kynningarbæklinginn má nálgast hér
Nánari upplýsingar á vefsíðum sveitarfélaganna
Húsavíkurbær
Kelduneshreppur
Öxarfjarðarhreppur
Raufarhafnarhreppur