Laus staða sérfræðings í umhverfisráðuneytinu
Laus er til umsóknar staða sérfræðings á skrifstofu náttúruverndar og lífsgæða í umhverfisráðuneytinu.
Óskað er eftir starfsmanni með háskólamenntun og reynslu sem nýtist á verkefnasviði skrifstofunnar sem tengist náttúruvernd, umhverfisrannsóknum, dýravernd, hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af störfum í stjórnsýslu.
Umsóknir skulu sendar ráðuneytinu fyrir 21. febrúar nk. Staðan veitist frá 15. mars 2006. Um launakjör fer samkvæmt samningi fjármálaráðuneytisins við Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins.
Vakin er athygli á 20. gr. laga nr. 96/2000, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla,
Nánari upplýsingar um stöðuna veitir Ingimar Sigurðsson, skrifstofustjóri, sími 545-8600.
Umhverfisráðuneytið
2. febrúar 2006