Nýr ráðuneytisstjóri
Jón B. Jónasson lögfræðingur og skrifstoðustjóri í sjávarútvegsráðuneytinu verður skipaður ráðuneytisstjóri sjávarútvegsráðuneytisins og tekur við starfinu þegar Vilhjálmur Egilsson lætur af því 15. mars. n.k. Jón hefur verið skrifstofustjóri í ráðuneytinu í 25 ár og staðgengill ráðuneytisstjóra. Jón hóf störf í ráðuneytinu 1974.
Sjávarútvegsráðuneytinu
10. febrúar 2006