Hoppa yfir valmynd
15. febrúar 2006 Innviðaráðuneytið

Málstofa um ferðaþjónustu fyrir alla

Nordiska Handikappspolitiska Rådet hefur stýrt verkefninu "Ferðaþjónusta fyrir alla" (Turism för Alla) fyrir þá sem starfa í greininni og þá sem bera ábyrgð á ferðamálum innan stjórnsýslunnar. Markmið ráðsins er að hugtakið verði að mikilvægum þætti innan ferðaþjónustu og atvinnulífs bæði á norrænum vettvangi og innan hvers lands.

Ferðaþjónusta fyrir alla snýst um að allir, óháð hvaða fötlun þeir búa við, geti ferðast þangað sem þeir óska. Ferðaþjónusta fyrir alla á því við allt sem snertir ferðamennsku, allt frá ferðum og flutningum, heimsóknum á áhugaverða staði, að deila upplifun, mat og húsnæði auk upplýsinga á hentugu formi.

      Markmiðið er að hvetja þá er starfa í og við ferðaþjónustuna til að líta á aðgengi sem eðlilegt gæðaviðmið. Jafnframt er vonast til þess að þeir sem starfa að ferðamálum, hið opinbera og samtök fatlaðra, fái tækifæri til að skiptast á skoðunum. Þá er einnig vonast til þess að ferðaþjónustan sjái hag sinn í því að hafa aðgengi sem hluta af markaðssetningu og upplýsingagjöf um norræna staði og draga þannig til sín fleiri viðskiptavini utan Norðurlanda auk þess sem allir norrænir ferðamenn, án mismununar vegna fötlunar, geti ferðast að vild innan Norðurlandanna.

        Þann 24. febrúar 2006 frá kl. 13:00 til 17:00 standa samgönguráðuneytið, Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofa og Öryrkjabandalagið að námstefnu um ferðaþjónustu fyrir alla. Námstefnan verður haldin í Ársal Hótel Sögu. Dagskrá er meðfylgjandi. Meðal ræðumanna verður þýskur hagfræðingur, Dr. Peter Neumann. Dr. Neumann hefur á vegum þýskra yfirvalda gert úttekt á efnahagslegri þýðingu þess að allir hafi jafna möguleika til ferðalaga. Þess utan verður fjallað um ferðaþjónustu fyrir alla frá sjónarmiði Nordiska Handikappspolitiska Rådet auk þess sem nokkrir íslenskir ræðumenn, bæði ferðamenn og bjóðendur þjónustu, segja frá.

12:30   Húsið opnar
13:00   Elías Gíslason, Forstöðumaður upplýsinga- og þróunarsviðs Ferðamálastofu setur málstofuna
13:05   Magnús Oddsson, ferðamálastjóri, flytur ávarp
13:15   Dr. Peter Neumann, hagfræðingur frá Þýskalandi, fjallar um ferðaþjónustu fyrir alla frá hagfræðilegu sjónarmiði - Dæmi frá Þýskalandi (Economic  Impacts of Accessible Tourism for All – The Case of Germany)
13:45   Fyrirspurnir til Dr. Peters Neumann
13:55   Ingemar Oderstedt, ráðgjafi hjá Nordiska Handikappolitiska R
ådet - ferðaþjónusta fyrir alla frá sjónarhóli Nordiska Handikappolitiska Rådet - Nordisk overview
14:10   Unnur Svavarsdóttir, stjórnandi hjá Íslandsferðum - er ferðaþjónustan í stakk búin til að taka á móti fötluðum ferðamönnum
14:25   Guðrún Fjelsted, hestaleigunni að Ölvaldsstöðum - reiðkennsla og hestaleiga fyrir fatlaða
14:40   Berglind Viktorsdóttir, gæðastjóri Ferðaþjónustu bænda - um aðgengi að ferðaþjónustubæjum
14:55   Hressing
15:10   Ásdís Jenna Ástráðsdóttir, háskólanemi - Ferðast um Evrópu í hjólastól
15:20   Þórunn Edda Bjarnadóttir, umhverfisskipulagsfræðingur frá Landbúnaðarháskóla Íslands - úttekt á aðgengi svæða
15:30   Guðmundur Magnússon, formaður ferlinefndar Öryrkjabandalagsins - Fastur í fegurðinni
15:40   Jón Hjalti Sigurðsson, tómstundaleiðbeinandi - Aðgengi án aðstoðar
15:50   Hressing
16:05   Niðurstöður - Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, dregur saman niðurstöður og þann lærdóm sem hafa má af því sem fram fór.

Ekki þarf að tilkynna þátttöku.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum