Tillögur nefndar um heildstæða uppbyggingu öldrunarþjónustu í Hafnarfirði
Tillögur nefndar um uppbyggingu heildrænnar öldrunarþjónustu í Hafnarfirði eru byggðar á mati nefndarinnar á stöðu öldrunarmála í sveitarfélaginu. Tillögurnar taka mið af markmiðum laga um málefni aldraðra og íslenskrar heilbrigðisáætlunar til ársins 2010 og varða jafnt uppbyggingu þjónustu á vegum bæjarfélagsins og ríkisins. Sumum þeirra er unnt að hrinda í framkvæmd nú þegar eða fljótlega án langs aðdraganda en aðrar krefjast mikillar skipulagningar og undirbúnings áður en þær komast á framkvæmdastig.