Reglugerð um hrognkelsaveiðar
Ráðuneytið hefur í dag gefið út reglugerð um grásleppuveiðar. Megin breytingar frá eldri reglum felast í því að á komandi grásleppuvertíð er hverjum báti heimilt að stunda grásleppuveiðar í semfellda 50 daga innan tímabilsins 10. mars til 20. júlí. Veiðar á innanverðum Breiðafirði mega þó ekki hefjast fyrr en 20. maí.
Sjávarútvegsráðuneytið 17. febrúar 2006.