Hoppa yfir valmynd
17. febrúar 2006 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir vegna stuðnings við dönskukennslu

Samkvæmt samningi milli menntamálaráðuneyta Íslands og Danmerkur um stuðning við dönskukennslu á Íslandi leggur menntamálaráðuneyti Íslands árlega fram 5,5 milljónir króna til verkefna.

Samkvæmt samningi milli menntamálaráðuneyta Íslands og Danmerkur um stuðning við dönskukennslu á Íslandi leggur menntamálaráðuneyti Íslands árlega fram 5,5 milljónir króna til verkefna, sbr. 4. gr. samningsins. Er hér auglýst eftir umsóknum um styrki til verkefna í eftirtöldum málaflokkum:

1. Endurmenntunarnámskeið fyrir dönskukennara í grunn- og framhaldsskólum

2. Námsefnisgerð í dönsku fyrir grunn- og framhaldsskóla

3. Rannsóknir og þróunarstarf á sviði náms og kennslu í dönsku sem erlends tungumáls

4. Vitundarvakning um mikilvægi dönskukunnáttu fyrir Íslendinga.

Samstarfsnefnd sem skipuð er fulltrúum beggja landanna metur umsóknir og gerir tillögur um styrkveitingar.

Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneyti í síðasta lagi mánudaginn 13. mars nk. á sérstökum eyðublöðum sem þar fást og sem jafnframt má nálgast á vef ráðuneytisins. Þar er einnig að finna samning menntamálaráðuneyta Íslands og Danmerkur. Nánari upplýsingar veitir María Gunnlaugsdóttir, deildarsérfræðingur í menntamálaráðuneyti, sími 545 9500, netfang: [email protected].



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum