Hoppa yfir valmynd
17. febrúar 2006 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Þýðingarsjóður 2006

Auglýsing um styrki til útgáfu á þýðingum erlendra bókmennta.

Samkvæmt lögum nr. 35/1981 og reglugerð nr. 638/1982 með síðari breytingu, um Þýðingarsjóð, er hlutverk sjóðsins að veita útgefendum fjárstuðning til útgáfu vandaðra erlendra bókmennta á íslensku máli, jafnt skáldverka sem viðurkenndra fræðirita. Greiðslur skulu útgefendur nota til þýðingarlauna.

Skilyrði fyrir styrkveitingu skulu einkum vera þessi:

1. Verkið sé þýtt úr frummáli ef þess er kostur.

2. Upplag sé að jafnaði eigi minna en 1000 eintök.

3. Gerð og frágangur verka fullnægi almennum gæðakröfum.

4. Eðlileg dreifing sé tryggð.

5. Útgáfudagur sé ákveðinn.

Fjárveiting til Þýðingarsjóðs í fjárlögum 2006 nemur 12,5 milljónum króna.

Eyðublað fyrir umsóknir um framlag úr sjóðnum fást í afgreiðslu menntamálaráðuneytis, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Einnig er unnt að nálgast umsóknareyðublöð á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is.

Umsóknarfrestur rennur út 20. mars 2006.

Stjórn Þýðingarsjóðs 17. febrúar 2006



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum