Hoppa yfir valmynd
1. mars 2006 Innviðaráðuneytið

Aðgengi fyrir alla verði viðmið allra

Góð viðbrögð voru við námsstefnunni "Ferðaþjónusta fyrir alla" sem samgönguráðuneytið, Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofa og Öryrkjabandalagið gengust fyrir síðastliðinn föstudag. Efni frá námsstefnunni er nú aðgengilegt hér á vefnum.

Allir geti ferðast þangað sem þeir óska
Um er að ræða kynningu sem Nordiska Handikappspolitiska Rådet hefur gengist fyrir að haldin yrði fyrir þá sem starfa í greininni og einnig þá sem bera ábyrgð á ferðamálum innan stjórnsýslunnar. Markmið ráðsins er að hugtakið verði að mikilvægum þætti innan ferðaþjónustu og atvinnulífs bæði á norrænum vettvangi og innan hvers lands. "Ferðaþjónusta fyrir alla" snýst um að allir, óháð hvaða fötlun þeir búa við, geti ferðast þangað sem þeir óska. "Ferðaþjónusta fyrir alla" á því við allt sem snertir ferðamennsku, allt frá ferðum og flutningum, heimsóknum á áhugaverða staði, að deila upplifun, mat og húsnæði auk upplýsinga á hentugu formi.

“Markmið verkefnisins er að hvetja þá er starfa í og við ferðaþjónustuna til að líta á aðgengi sem eðlilegt gæðaviðmið. Jafnframt var tilgangurinn að skapa vettvang til að þeir sem starfa að ferðamálum, hið opinbera og samtök fatlaðra, fái tækifæri til að skiptast á skoðunum,” segir Elías Bj. Gíslason, forstöðumaður upplýsinga- og þróunarsviðs Ferðamálastofu.

Tveir erlendir fyrirlesarar
Alls fluttu níu fyrirlesarar erindi á námsstefnunni, þar af tveir erlendir. Annars vegar var það þýskur hagfræðingur, Dr. Peter Neumann, sem hefur á vegum þýskra yfirvalda gert úttekt á efnahagslegri þýðingu þess að allir hafi jafna möguleika til ferðalaga. Þá fjallaði Ingemar Oderstedt, ráðgjafi hjá Nordiska Handikappspolitiska Rådet, um ferðaþjónustu fyrir alla frá sjónarmiði ráðsins.

Málstofa samgönguráðuneytisins, Samtaka ferðaþjónustunnar,
Ferðamálastofu og Öryrkjabandalagsins
Ferðaþjónusta fyrir alla

Haldin í Ársal Radisson SAS Hótel Sögu við Hagatorg
24. febrúar 2006 frá klukkan 13 til 17

í samvinnu við Nordiska Handikappolitiska Rådet, sem er ein af stofnunum Norðurlandaráðs


Erindi og glærukynningar ráðstefnunnar:

Magnús Oddsson, ferðamálastjóri -
Glærur (PDF 0,1 MB)

Dr. Peter Neumann, hagfræðingur frá Þýskalandi,
- Ferðaþjónusta fyrir alla frá hagfræðilegu sjónarmiði - Dæmi frá Þýskalandi (Economic
Impacts of Accessible Tourism for All – The Case of Germany)
Glærur (PDF 3,4 MB)

Ingemar Oderstedt, ráðgjafi hjá Nordiska Handikappolitiska Rådet
- Ferðaþjónusta fyrir alla frá sjónarhóli Nordiska Handikappolitiska Rådet -
Nordisk overview
Glærur (PDF 2,3 MB)

Unnur Svavarsdóttir, stjórnandi hjá Íslandsferðum
- Er ferðaþjónustan í stakk búin til að taka á móti fötluðum ferðamönnum
Glærur (PDF 0,1 MB) - Erindi (PDF 0,1 MB)

Berglind Viktorsdóttir, gæðastjóri Ferðaþjónustu bænda
- Um aðgengi að ferðaþjónustubæjum
Glærur (PDF 0,1 MB)

Ásdís Jenna Ástráðsdóttir, háskólanemi
- Ferðast um Evrópu í hjólastól
Glærur (PDF 5,8 MB) - Erindi (PDF 0,1 MB)

Þórunn Edda Bjarnadóttir, umhverfisskipulagsfræðingur frá Landbúnaðarháskóla Íslands
- Úttekt á aðgengi svæða
Glærur (PDF 1,2 MB)

Guðmundur Magnússon, formaður ferlinefndar Öryrkjabandalagsins
- Fastur í fegurðinni
Glærur (PDF 1,3 MB) - Erindi (PDF 0,1 MB)

Niðurstöður - Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, dró saman niðurstöður og þann lærdóm sem hafa má af því sem fram fór.
Glærur (PDF 0,1 MB)

Frétt fengin af vef Ferðamálastofu: http://www.ferdamalastofa.is

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum