Hoppa yfir valmynd
7. mars 2006 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Sameining sveitarfélaga á Tröllaskaga

Félagsmálaráðuneytið staðfesti þann 3. mars síðastliðinn sameiningu Ólafsfjarðarbæjar og Siglufjarðarkaupstaðar í eitt sveitarfélag. Íbúar beggja sveitarfélaga samþykktu sameininguna í atkvæðagreiðslu sem fram fór þann 28. janúar síðastliðinn.

Sameiningin tekur gildi 11. júní 2006. Nafn hins sameinaða sveitarfélags verður auglýst síðar en fyrirhugað er að kosið verði um nafn samhliða sveitarstjórnarkosningum er fram fara 27. maí 2006.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum