Hoppa yfir valmynd
23. mars 2006 Matvælaráðuneytið

Sjávarútvegsráðherra fundar með Ben Bradshaw sjávarútvegsráðherra Bretlands

Sjávarútvegsráðherra fundar með

Ben Bradshaw sjávarútvegsráðherra Bretlands

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra átti í dag fund í Lundúnum með Ben Bradshaw sjávarútvegsráðherra Bretlands í kjölfar heimsóknar til helstu markaðsfyrirtækja Íslendinga á sviði sjávarútvegs, flutninga og matvælaframleiðslu. Á fundi ráðherranna var farið yfir sameiginleg hagsmunamál ríkjanna á vettvangi sjávarútvegs og hvað betur má fara, ekki hvað síst er snertir samskipti Íslands og Evrópusambandsins.

Meðal annars var rætt um tolla sem Evrópusambandið leggur á nokkrar íslenskar sjávarafurðir, sem fluttar eru út til sambandslandanna. Ben Bradshaw tók vel í að liðsinna Íslendingum að fá tollana fellda niður, gegn hugsanlegu afnámi útflutningsálags á ferskan óveginn fisk frá Íslandi. Fiskimálanefnd Evrópusambandsins hittist í næstu viku í Brussel og reiknar Bradshaw jafnvel með að Bretar taki málið upp þá þegar.

Ráðherrarnar lýstu gagnkvæmri ánægju með aðgerðir þjóðanna tveggja gegn ólöglegum og óábyrgum veiðum, s.k. sjóræningjaveiðum. Bradshaw hvatti íslensk stjórnvöld til að leggja Bretum og fleiri þjóðum enn meira lið í baráttunni og á breiðari grunni en þegar er.

Einar K. Guðfinnsson greindi Bradshaw frá vísindaveiðum Íslendinga á hrefnu og hvert verður framhald þeirra. Ennfremur gerði sjávarútvegsráðherra grein fyrir bráðabirgðaniðurstöðum vísindarannsóknanna sem kynntar voru í síðustu viku. Ben Bradshaw lýsti afstöðu Breta til hvalveiða og andstöðu sinni við þær, en um leið áhuga á að kynna sér niðurstöður vísindarannsóknanna betur.

Sjávarútvegsráðherra átti einnig fund með Bill Wiggin skuggamálaráðherra Íhaldsflokksins í sjávarútvegsmálum, þar sem einnig var farið yfir helstu hagsmunamálin Lýsti Wiggin hrifningu sinni á íslenskum sjávarútvegi, sem taka ætti til fyrirmyndar.

Að lokum hitti sjávarútvegsráðherra nokkra þingmenn sem láta sig sjávarútvegsmál miklu varða og hafa sýnt málefnum Íslands sérstakan áhuga.

Einar_Ben_23_mars_06_jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra og
Ben Bradshaw sjávarútvegsráðherra Bretlands.

Sjávarútvegsráðuneytinu 23.mars 2006



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum