Úthlutun styrkja til verkefna á sviði mannréttindamála
Fréttatilkynning
14/2006
Dómsmálaráðherra hefur úthlutað 8 milljónum króna í styrki til verkefna á sviði mannréttindamála. Hæsta styrkinn hlaut Mannréttindaskrifstofa Íslands, alls 4,6 milljónir króna, og næst hæsti styrkur rann til Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands, 1,5 milljónir króna.
Úthlutanir dómsmálaráðherra voru þessar:
Mannréttindaskrifstofa Íslands, 4,6 milljónir króna til eftirfarandi verkefna:
- Rannsóknarverkefnis í íslenskum rétti og alþjóðlegum mannréttindasáttmálum, 1,6 milljónir kr.
- Útgáfu kennsluefnis um mannréttindi, 1,1 milljón króna.
- Ritraðar Mannréttindaskrifstofunnar, 840 þúsund kr.
- Málþings og málstofa, 650 þúsund kr.
- Uppbyggingar sérhæfðs bókasafns, 550 þúsund kr.
- Þátttöku í alþjóðlegu mannréttindastarfi, 400 þúsund kr.
- Námskeiðs um mannréttindi fyrir almenning og faghópa, 110 þúsund kr.
Mannréttindastofnun Háskóla Íslands, 1,5 milljónir króna til eftirfarandi verkefna:
- Útgáfu reifana dóma mannréttindadómstóls Evrópu, 1350 þúsund kr.
- Rannsóknar á sviði mannréttindamála, 150 þúsund kr.
Félag heyrnarlausra, 300 þúsund krónur til verkefnisins:
- Rannsóknar á málefnum heyrnarlausra varðandi aðgengi og tjáningarfrelsi og rétti heyrnarlausra vegna táknmálstúlkunar.
Heimili og skóli, 300 þúsund krónur til verkefnisins:
- Fræðslu og gerðar bæklings á ýmsum tungumálum fyrir nýja Íslendinga.
Félag guðfræðinema, 400 þúsund krónur til verkefnisins:
- Útgáfu og ráðstefnuhalds um mannréttindi út frá kristinni sið- og trúfræði.
Island-Panorama, 500 þúsund krónur til verkefnisins:
- Fræðslu- og ráðgjafarverkefnis gegn útlendingafælni og útlendingahatri.
Ungmennafélag Íslands, 300 þúsund krónur til verkefnisins:
- Forvarna gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum.
Mannréttindanefnd ELSA, 100 þúsund krónur til verkefnisins:
- Opinna funda, fræðilegrar umræðu og samstarfs við félagasamtök á vettvangi mannréttinda.
Reykjavík 23. mars 2006