Hoppa yfir valmynd
29. mars 2006 Matvælaráðuneytið

Reglugerð um veiðar á norsk-íslenskri síld 2006

Fréttatilkynning

um veiðar á norsk-íslenskri síld.

Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að íslenskum skipum verði heimilt að veiða 153.817 lestir af norsk-íslenskri síld á þessu ári.  Samkvæmt vísindaráðgjöf frá Alþjóðahafrannsóknaráðinu (ICES) er lagt til að veiddar verði 732 þúsund lestir alls úr stofninum á yfirstandandi ári og er það í samræmi við langtímastjórnun á veiðum úr norsk-íslenska síldarstofninum. 

Samkvæmt þeirri skiptingu sem ríkti á meðan samningar voru í gildi um stjórn veiða úr stofninum, var hlutur Íslands 15,54% af leyfilegum heildarafla. Samkvæmt því hefði hlutur Íslands orðið 113.753 lestir á þessu ári.  Norðmenn hafa hins vegar ekki viljað fallast á skiptingu heildarmagnsins á óbreyttum forsendum og krafist þess að fá stærri hlut en þeir hafa haft samkvæmt fyrri samningum. Til að fylgja þeirri kröfu eftir settu þeir sér kvóta fyrir árið 2006 sem er hærri en sá kvóti sem Noregur hefði fengið samkvæmt fyrri skiptingu auk þess sem þeir miða hlut sinn við heildaraflamark sem nemur 868 þúsund lestum, sem er 136 þúsund lestum umfram ráðgjöf ICES. Sá kvóti sem Norðmenn settu sér fyrir yfirstandandi ár er alls 35,22% hærri en sá kvóti sem Noregur hefði fengið samkvæmt þeirri skiptingu, og viðmiði um heildaraflamark, sem ríkti á meðan samningar voru í gildi um stjórn veiða úr stofninum.

Samningar um stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum voru í gildi frá árinu 1996 til ársins 2002 þegar Norðmenn neituðu að halda stjórnuninni áfram óbreyttri. Aðilar samningsins, þ.e. Ísland, Evrópusambandið, Færeyjar, Noregur og Rússland, héldu þó áfram að stjórna veiðum sínum í samræmi við samninginn þangað til Norðmenn hækkuðu kvóta sinn einhliða á síðasta ári. Þá var hækkun Norðmanna 14%.

Sjávarútvegsráðherra hefur rætt málið við sjávarútvegsráðherra Noregs auk þess sem embættismenn landanna hafa átt viðræður. Norðmenn hafa verið hvattir til þess að endurskoða ákvörðun sína og þeim verið bent á að ef þeir geri það ekki neyðist Íslendingar til þess að setja sér hærri kvóta en þeir hefðu annars gert, til að halda hlut sínum af heildarveiðinni. Þannig yrði hækkun Íslendinga að vera í það minnsta til jafns við hækkun Norðmanna, eins og raunin var árið 2005 þegar Ísland hækkaði hlut sinn um 14% til að halda hlut sínum gagnvart Noregi. Aukning Norðmanna á sínum kvóta verði þannig til að auka veiðar úr stofninum umfram það sem skynsamlegt er, frekar en að auka hlut Noregs af heildarveiðinni.

Í ljósi þess að ekkert bendir til þess að Norðmenn muni endurskoða ákvörðun sína um aflaheimildir í norsk-íslenskri síld árið 2006, hefur verið ákveðið að veiðiheimildir íslenskra skipa verði 35,22% hærri en sem nemur 113.753 lestum og er því íslenskum skipum heimilað að veiða 153.817 lestir árið 2006.

 

Reglugerð

 

Sjávarútvegsráðuneytinu, 29. mars 2006

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum