Nýjar reglugerðir um almenn útboð verðbréfa og skráningu verðbréfa á skipulegan verðbréfamarkað.
Nýjar reglugerðir um almenn útboð verðbréfa og skráningu verðbréfa á skipulegan verðbréfamarkað hafa tekið gildi. Koma þessar reglugerðir í kjölfar breytinga á IV. kafla laga nr. 33/2003 um verðbréfaviðskipti sem gildi tóku 1. janúar 2006. Er með framangreindu verið að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2003/71/EB frá 4. nóvember 2003 um lýsingar þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða skráð á skipulegan verðbréfamarkað og reglugerð framkvæmdastjórnar ESB nr. 809/2004 en þar er m.a. að finna nákvæmar reglur um innihald lýsinga, sem og um það hvernig þær skuli auglýstar og birtar opinberlega.
Um er að ræða eftirfarandi reglugerðir:
Reglugerð nr. 242/2006 um almenn útboð verðbréfa að verðmæti 210 millj. kr. eða meira og skráningu verðbréfa á skipulegan verðbréfamarkað.
Reglugerð nr. 243/2006 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 809/2004 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2003/71/EB að því er varðar upplýsingar í lýsingum, svo og framsetningu þeirra, upplýsingar felldar inn með tilvísun, og birtingu lýsinganna, svo og dreifingu auglýsinga.
Reglugerð nr. 244/2006 um almenn útboð verðbréfa að verðmæti 8,4 til 210 millj. kr.
Reglugerð nr. 245/2006 um opinbera skráningu verðbréfa í kauphöll.