Hoppa yfir valmynd
6. apríl 2006 Matvælaráðuneytið

Brottkastskönnun kynnt

Fréttatilkynning frá sjávarútvegsráðuneyti

Niðurstöður úr rannsókn IMG Gallup á umfangi og eðli

brottkasts fisks á Íslandsmiðum.

Könnunin var framkvæmd 29. desember 2005 – 24. janúar 2006.

 

Verulega hefur dregið úr brottkasti fisks á Íslandsmiðum samkvæmt nýrri könnun sem IMG Gallup hefur gert fyrir sjávarútvegsráðuneytið. Niðurstöðurnar benda til að brottkast hafi minnkað um helming. Rúmlega 10% sjómanna urðu varir við brottkast í síðustu veiðiferð sinni. Fyrir fimm árum var hlutfallið ríflega 20% og rúm 18% í könnun fyrir tveimur árum.

 

Samkvæmt útreikningum IMG Gallup er heildarbrottkast á fiski á sjó nú rúmlega 19.400 tonn á ársgrundvelli, en samkvæmt könnun sem framkvæmd var 2000-2001 var brottkastið u.þ.b. 38.400 tonn. Samkvæmt þessu hefur brottkast því minnkað um tæplega helming á síðustu 5 árum.  

 

Helmingi færri sjómenn urðu varir við brottkast nú en í könnuninni 2000-2001. Hlutfallið er nú 10,2% samanborið við 20,3% í könnuninni 2000-2001 og 18,4% í könnuninni í janúar 2004.

 

Tæplega helmingur sjómanna telur brottkast á fiski hafa minnkað á síðustu 3 árum. Tæplega 40% telja brottkastið hafa staðið í stað, en einungis rúm 13% telja að það hafi aukist.

 

Í langflestum tilfellum, eða tæplega 90%, segja sjómenn að undirmálsfiski hafi einkum verið kastað. 

 

Þróunin sem sést í könnunum IMG Gallup hefur komið heim og saman við árlegar rannsóknir Hafrannsóknastofnunarinnar og Fiskistofu á brottkasti. Brottkast hefur minnkað á undanförnum fimm árum og er það til marks um ábyrga umgengni um auðlindina.

 

Könnunin var gerð frá 29. desember 2005 til 24. janúar 2006. Í endanlegu úrtaki voru 1114 lögskráðir sjómenn á skrá hjá Siglingastofnun. 680 svöruðu eða 61,0%.

 

Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra kynnti niðurstöðurnar á blaðamannafundi í dag.

 

Niðurstöður könnunarinnar

 

   

                                                                                    Sjávarútvegsráðuneytinu 6. apríl 2006



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum