Hoppa yfir valmynd
26. apríl 2006 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Samstarf við Svartfjallaland

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 9/2006

Fjármálaráðherra Svartfjallalands Igor Luksic kom í stutta heimsókn til Íslands í dag í þeim tilgangi að kynna sér íslenska efnahagskerfið og þær breytingar sem íslenskt efnahagslíf hefur gengið í gegnum á undanförnum árum.

Ráðherrann átti fund með fjármálaráðherra Árna M. Mathiesen í fjármálaráðuneytinu í dag þar sem farið var yfir stjórn efnahags- og ríkisfjármála Íslands. Sérstök áhersla var lögð á fjárlagagerð og framkvæmd fjárlaga, skattamál og horfur í efnahagslífinu. Jafnframt kynnti Igor Luksic þær umbætur sem gerðar hafa verið á efnahagskerfi Svartfjallalands. Landið er í ríkjassambandi við Serbíu en ríkin sjá hvort um sig um stjórn eigin efnahagsmála og hafa sitt hvorn gjaldmiðilinn. Á næstunni mun það skýrast hvort íbúar Svartfjallalands segi sig alfarið úr ríkjasambandinu við Serbíu þar sem fyrir dyrum stendur að kjósa um málið.

Ráðherrarnir undirrituðu yfirlýsingu um aukið samstarf landanna á sviði ríkisfjármála með sérstaka áherslu á upplýsingagjöf varðandi undirbúning og framkvæmd fjárlaga, umgjörð og fyrirkomulag lífeyrissjóða og reynslu þjóðanna á sviði gjaldeyrismála.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum