Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 3/2006
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:
- Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 17.500
- Gisting í einn sólarhring kr. 11.500
- Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 6.000
- Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 3.000
Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2006. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 6/2005 dags. 26. september 2005.
Nefndin fer þess á leit við viðkomandi ráðuneyti að þau kynni efni þessarar auglýsingar þeim stofnunum og fyrirtækjum sem undir þau heyra.
Ennfremur er vakin athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármálaráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi:
www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostn.html
Reykjavík, 23. maí 2006
Ferðakostnaðarnefnd