Hoppa yfir valmynd
18. maí 2006 Matvælaráðuneytið

Skýrsla verkefnisstjórnar um Vaxtarsamning Suðurlands.

Skýrsla verkefnisstjórnar um Vaxtarsamning Suðurlands

 

Í dag var kynnt skýrsla verkefnisstjórnar um Vaxtarsamning Suðurlands með sérstöku tilliti til Vestmannaeyja og Vestur Skaftafellssýslu. Í henni kemur fram hvaða kostir komi helst til greina við að treysta vöxt og samkeppnishæfni svæðisins. Það er niðurstaða verkefnisstjórnar að Suðurland eigi sér mikla möguleika til vaxtar og þróunar og aukinnar samkeppnishæfni, sem mun auka fjölbreytni og lífskjör á svæðinu. Það er jafnframt mat verkefnisstjórnar að fyrir árið 2020 verði íbúatala Suðurlands komin í um 26.500, sem samsvarar árlegri fjölgun íbúa um 1,2%.

 

Tillögum verkefnisstjórnar er skipt í 3 flokka sem eru: 1. Uppbyggingu helstu byggðakjarna s.s. Árborgarsvæðis, Vestmannaeyja og jaðarsvæða 2. Gerður verði vaxtarsamningur fyrir Suðurland og 3. tillögur eru um beinar aðgerðir á einstaka sviðum. Markmið tillagnanna er fyrst og fremst að auka hagvöxt svæðisins, fjölga atvinnutækifærum og treysta byggðakjarna á svæðinu svo þeir geti enn frekar sinnt því lykilhlutverki sínu að vera miðstöð atvinnu, menningar og þjónustu.

 

Tillögur skýrslunnar eru um margt nýjung hér á landi, en í framhaldi af sambærilegum verkefnum á Eyjafjarðarsvæðinu og Vestfjörðum. Tillögurnar taka mið af sambærilegum áherslum víða erlendis m.a. frá OECD, þar sem lögð er aukin áhersla á að efla byggðakjarna með markaðstengdum aðgerðum þar sem atvinnulíf ber uppi hagvöxt svæðisins.

 

Í mars 2005 skipaði iðnaðarráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, verkefnisstjórn til að gera tillögu um stefnumörkun í byggðamálum á Suðurlandi. Í verkefnisstjórnina voru skipuð, Baldur Pétursson, deildarstjóri, iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti, formaður, Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri, Vestmannaeyjum, Elliði Vignisson, kennari, varaforseti bæjarstjórnar, Vestmannaeyjum, Friðrik Pálsson, framkvæmdastjóri, Reykjavík, Guðrún Erlingsdóttir, forseti bæjarstjórnar, Vestmannaeyjum, Orri Hlöðversson, bæjarstjóri, Hveragerði, Elín Einarsdóttir, oddviti Mýrdalshrepps, Vík, Þorvarður Hjaltason, framkvæmdastjóri, Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, Selfossi Þorvaldur Guðmundsson, formaður bæjarráðs Árborgar og Eyjólfur Árni Rafnsson, framkvæmdastjóri Hönnunar, Reykjavík. Auk þess tók Gunnsteinn Ómarsson sveitarstjóri Skaftárhrepps þátt í störfum verkefnisstjórnarinnar.  Með verkefnisstjórninni störfuðu Karl Friðriksson, framkvæmdastjóri á Iðntæknistofnun og Kristján Óskarsson, sérfræðingur á Iðntæknistofnun, Róbert Jónsson framkvæmdastjóri og Örn Þórðarson sérfræðingur frá Atvinnuþróunarsjóði Suðurlands og Páll Marvin Jónsson, forstöðumaður Rannsókna- og fræðaseturs Vestmannaeyja.

 

Iðnaðarráðherra mun á næstunni yfirfara tillögur verkefnisstjórnarinnar og meta þær og kalla eftir samstarfi við viðeigandi aðila, s.s. önnur ráðuneyti og sveitarfélög á svæðinu.

 

 Vaxtarsamningur Suðurlands, (pdf-skjal, 7.84MB)

 

Reykjavík, 18. maí 2006



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum