Hoppa yfir valmynd
19. maí 2006 Matvælaráðuneytið

Breyting á reglugerð nr. 485, 9. júní 2004, um úthlutun krókaaflahlutdeildar til sóknardagabáta

Í áliti umboðsmanns Alþingis frá 25. október sl. (mál nr. 4332/2005 og 4398/2005) varðandi reglur um úthlutun krókaaflahlutdeilda til sóknardagabáta, sem voru endurnýjaðir á fiskveiðiárinu 2002/2003 eða á fiskveiðiárinu 2003/2004 fram til 28. maí 2004, er þeim tilmælum beint til sjávarútvegsráðuneytisins að það taki ákvæði 1. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 485/2004 til endurskoðunar í ljósi þeirra sjónarmiða sem rakin eru í álitinu. Með hliðsjón af áliti umboðsmanns og þeim sjónarmiðum sem það byggist á hefur ráðuneytið breytt umræddum ákvæðum reglugerðarinnar.

sjá reglugerð

Sjávarútvegsráðuneytið



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum