Hoppa yfir valmynd
19. maí 2006 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Skoðanakönnun um nafn á sameinuðu sveitarfélagi í Borgarfirði

Samhliða sveitarstjórnarkosningunum í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar, Borgarfjarðarsveitar, Hvítársíðuhrepps og Kolbeinsstaðahrepps fer fram skoðanakönnun um nafn á nýja sveitarfélagið.

Kjósendum gefst kostur á að veitt eitt eftirtalinna nafna:

  • Borgarbyggð
  • Brákarbyggð
  • Mýrarbyggð
  • Sveitarfélagið Borgarfjörður.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum