Hoppa yfir valmynd
13. júní 2006 Matvælaráðuneytið

Hvalveiðar í vísindaskyni

Hvalveiðar í vísindaskyni

Hvalarannsóknaáætlun Hafrannsóknastofnunarinnar var lögð fyrir vísindanefnd Alþjóðahvalveiðiráðsins árið 2003 í samræmi við reglur ráðsins. Áætlunin gerir ráð fyrir því að 200 hrefnur, 200 langreyðar og 100 sandreyðar verði veiddar á rannsóknatímabilinu.

Sumarið 2003 hófst framkvæmd hrefnuhluta áætlunarinnar, en ekki hefur enn verið ákveðið að hefja framkvæmd langreyðar- eða sandreyðarhlutans. Einnig var ákveðið að taka færri dýr en upphaflega var gert ráð fyrir en 36 hrefnur voru teknar árið 2003 og 25 hrefnur voru teknar árið 2004 og 39 hrefnur í fyrra. Rannsóknaáætlunin er þó óbreytt þar sem gert er ráð fyrir að 200 hrefnur verði teknar á rannsóknatímabilinu.

Við framkvæmd rannsóknaáætlunarinnar á þessu ári verður haldið áfram á sömu braut og verða veiðarnar aftur í frekar smáum stíl. Þannig verða gefin út leyfi fyrir því að veiddar verði allt að 50 hrefnur á þessu ári og þar með verði alls lokið við veiðar á 150 hrefnum af þeim 200 sem áætlunin gerir ráð fyrir. Veiðunum verður stjórnað af Hafrannsóknastofnuninni.

Umræddar veiðar eru í samræmi við stofnsamning Alþjóðahvalveiðráðsins og með þeim er vilji Alþingis framkvæmdur, sbr. ályktun Alþingis frá 10. mars 1999.

Samkvæmt 8. gr. stofnsamnings Alþjóðahvalveiðiráðsins fylgir réttinum til að stunda hvalveiðar í vísindaskyni sú skuldbinding að nýta afurðir hvalanna sem eru veiddir. Afurðir þeirra hrefna sem verða veiddar í ár verða nýttar eftir því sem hægt er þótt veiðarnar séu í vísindalegum tilgangi, eins og raunin er almennt með þær afurðir sem falla til við rannsóknastarfsemi Hafrannsóknastofnunarinnar.

Vísbendingar eru um að stærð hrefnustofnsins geti haft veruleg áhrif á afrakstursgetu nytjafiska, þ.m.t. þorsks, en mikil óvissa er um þessi áhrif einkum vegna skorts á gögnum um fæðusamsetningu hrefnu hér við land. Megin markmið þessara rannsókna Hafrannsóknastofnunarinnar er að kanna betur hlutverk hrefnu í vistkerfi hafsins í kringum Ísland. Ljóst er að nytjafiskar eru hluti af fæðu hrefnu, en samspil fiska og hrefnu í vistkerfinu er lítt þekkt. Í ljósi mikilvægis sjávarútvegs fyrir Ísland er nauðsynlegt að hafa góðar vísindalegar upplýsingar um áhrif hrefnu á afrakstur nytjastofna og að geta sett hrefnu með fullnægjandi hætti inn í fjölstofnalíkön. Rannsóknirnar hafa jafnframt önnur markmið, sem m.a. tengjast líffræði hrefnu og erfðafræði. Nánari upplýsingar um rannsóknirnar er að finna á heimasíðu Hafrannsóknastofnunarinnar www.hafro.is.

 

 

Sjávarútvegsráðuneytið, 13. júní 2006

 

 

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum