Hoppa yfir valmynd
21. júní 2006 Matvælaráðuneytið

Fréttatilkynning frá ARKEA hf og Rf

Rf og Arkea hf, sem er móðurfélag líftæknifyrirtækisins Prokaria, hafa undirritað samning um að sérstakt fyrirtæki í eigu Rf taki yfir erfðagreininga- og ensímsvið Prokaria. Stofnað verður sérstakt fyrirtæki í eigu Rf, sem heldur nafni Prokaria um þessa starfsemi. Nýja fyrirtækið mun taka yfir núverandi verkefni, aðstöðu og tækjabúnað Prokaria og ráða til sín starfsmenn þessara sviða. Dr. Jakob K. Kristjánsson, sem verið hefur forstjóri Prokaria mun taka þátt í þessum breytingunum og taka sæti í stjórn hins nýja félags.

Prokaria hefur á undanförnum árum byggt upp öflugar rannsóknir og hagnýtingu á erfðaauðlindum náttúrunnar á sviði erfðagreininga og ensímþróunar. Fyrirtækið er með þróunarsamninga við alþjóðleg stórfyrirtæki í matvælaiðnaði eins og Nestlé og Roquette. Einnig þjónar fyrirtækið fjölmörgum innlendum og erlendum viðskiptavinum í erfðagreiningum á fiski, dýrum og umhverfi. Prokaria hefur verið brautryðjandi hérlendis í þróun og notkun erfðagreininga í fiskeldi og fleiri sviðum.

 

Arkea hf. verður áfram með rekstur í öðrum dótturfélögum sínum um verkefni á sviði DNA ensíma og próteinframleiðslu úr útblæstri jarðhitaorkuvera. Stefnt er að áframhaldandi góðu samstarfi um þessi og önnur verkefni milli þessara aðila.

 

Starfsemi Rf hefur þróast mikið á undanförnum árum og framundan eru frekari breytingar á starfseminni.  Ný lög um stofnun Matvælarannsókna hf hafa verið samþykkt þar sem Rf verður stór hluti af þeirri starfsemi. Með sameiningu á matvælarannsóknum er verið að sameina Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Matra sem er samstarfsverkefni Iðntæknistofnunar og Landbúnaðarháskólans og Rannsóknastofu umhverfisstofnunar eru miklir möguleikar á að byggja upp öfluga rannsóknareiningu á sviði nýsköpunar í matvælaiðnaði sem mun jafnframt leggja áherslu á að tryggja öryggi og heilnæmi matvæla með rannsókum á því sviði. Innkoma erfðagreininga- og ensímþrónarsviða Prokaria inn í þetta ferli veitir enn frekari möguleika til uppbyggingar og sóknar fyrir Matvælarannsóknir hf.

 

Nánari upplýsingar

Sjöfn Sigurgísladóttir

Sími 893 8251



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum