Hoppa yfir valmynd
22. júní 2006 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Opnun formlegrar athugunar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) á ríkisaðstoð sem veitt er Íbúðalánasjóði

Í fréttatilkynningu Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) sem birt er 21. júní 2006 kemur fram að stofnunin hafi ákveðið að hefja formlega athugun á ríkisaðstoð sem veitt er Íbúðalánasjóði.

Með ákvörðuninni er ESA að bregðast við dómi EFTA-dómstólsins frá 7. apríl sl. þar sem dæmd var ógild sú niðurstaða ESA, samanber ákvörðun frá 11. ágúst 2004, að ríkisaðstoðin væri þjónusta í almannaþágu og því í samræmi við ríkisstyrkjareglur EES-samningsins. Í dómnum kemur fram að vafi leiki um tiltekin atriði og að niðurstöður ESA um þau hafi ekki verið nægilega rökstudd af hálfu eftirlitsstofnunarinnar. ESA mun því hefja nýja athugun málsins og er líklegt að athugunin muni taka u.þ.b. eitt ár.

Sjá fréttatilkynningu Eftirlitsstofnunar EFTA:

http://www.eftasurv.int/information/pressreleases/2006pr/dbaFile9655.html



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum