Hoppa yfir valmynd
29. júní 2006 Forsætisráðuneytið

Skipun bankastjóra Seðlabanka Íslands

Forsætisráðherra hefur í dag fallist á beiðni Jóns Sigurðssonar, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, um lausn frá embætti bankastjóra Seðlabanka Íslands. Jafnframt hefur forsætisráðherra skipað Ingimund Friðriksson, aðstoðarbankastjóra, í embætti bankastjóra í Seðlabanka Íslands til sjö ára frá 1. september n.k.

Ingimundur Friðriksson er fæddur 17. febrúar 1950. Hann hefur lokið MA prófi í þjóðhagfræði og starfað í Seðlabankanum fyrst 1973 og síðan frá 1975, auk þess að gegna störfum á vegum Norðurlandanna og Eystrastaltsríkjanna í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Ingimundur hefur verið aðstoðarbankastjóri Seðlabanka Íslands frá 1994, auk þess að vera settur bankastjóri fyrst 2002-2003 og nú síðast til loka ágústmánaðar n.k.

                                                                                                 

 

                                                                                                Reykjavík 29. júní 2006



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta