Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-júní 2006
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs eftir fyrri árshelming 2006 liggur nú fyrir. Samkvæmt uppgjörinu jókst handbært fé frá rekstri um 29,7 milljarða króna innan ársins, sem er 16 milljörðum hagstæðari útkoma heldur en á sama tíma í fyrra. Þá er útkoman 35 milljörðum hagstæðari en gert var ráð fyrir í áætlun. Tekjur reyndust um 17 milljörðum hærri en í fyrra meðan gjöldin hækkuðu um 1,3 milljarða. Hreinn lánsfjárjöfnuður er jákvæður um 27,5 milljarða króna sem er 1,6 milljörðum betra en á sama tíma í fyrra.
Sjóðstreymi ríkissjóðs janúar –júní 2006
(Í milljónum króna)
|
2002 |
2003 |
2004 |
2005 |
2006 |
Innheimtar tekjur |
113.244 |
130.556 |
133.583 |
165.540 |
182.826 |
Greidd gjöld |
120.944 |
127.670 |
138.399 |
151.887 |
153.160 |
Tekjujöfnuður |
-7.700 |
2.886 |
-4.816 |
13.653 |
29.666 |
Söluhagn. af hlutabr. og eignahl. |
-39 |
-12.059 |
- |
- |
- |
Breyting rekstrartengdra eigna og skulda |
277 |
114 |
2.574 |
1.883 |
40 |
Handbært fé frá rekstri |
-7.462 |
-9.059 |
-2.243 |
15.536 |
29.706 |
Fjármunahreyfingar |
3.118 |
17.596 |
4.251 |
10.379 |
-2.208 |
Hreinn lánsfjárjöfnuður |
-4.343 |
8.424 |
-858 |
25.915 |
27.498 |
Afborganir lána |
-19.484 |
-17.952 |
-28.604 |
-30.002 |
-38.873 |
Innanlands |
-9.344 |
-5.545 |
-3.601 |
-13.775 |
-24.100 |
Erlendis |
-10.141 |
-12.408 |
-25.004 |
-16.227 |
-14.773 |
Greiðslur til LSR og LH |
-4.500 |
-3.750 |
-3.750 |
-1.900 |
-1.980 |
Lánsfjárjöfnuður, brúttó |
-28.328 |
-13.279 |
-33.212 |
-5.988 |
-13.355 |
Lántökur |
24.892 |
14.038 |
34.780 |
9.579 |
16.246 |
Innanlands |
6.937 |
12.661 |
11.228 |
5.305 |
8.146 |
Erlendis |
17.955 |
1.377 |
23.552 |
4.274 |
8.100 |
Greiðsluafkoma ríkissjóðs |
-3.435 |
760 |
9.828 |
3.591 |
2.890 |
Innheimtar tekjur ríkissjóðs námu 183 ma.kr. á fyrri helmingi þessa árs. Það er rúmum 17 ma.kr meira en á sama tíma í fyrra, eða 10,4% aukning. Ef tekið er tillit til tilfærslu milli mánaða vegna tekjuskatts lögaðila nemur aukningin 8,5%. Skatttekjur og tryggingagjöld jukust um rúm 14% að nafnvirði. Á sama tíma hækkaði almennt verðlag um 5,7% og raunaukning skatttekna og tryggingargjalda var því 8%. 41% samdráttur annarra rekstrartekna milli ára skýrist af arðgreiðslum vegna Landsímans á þessu tímabili í fyrra.
Skattar á tekjur og hagnað námu 65 ma.kr. og jukust um 16 ma.kr. frá síðasta ári, eða 33%. Þar af jókst tekjuskattur einstaklinga um 12% og lögaðila um 98% (þá er leiðrétt fyrir fyrrgreindri tilfærslu) og fjármagnstekjuskattur um 43%. Innheimt tryggingagjöld jukust um 15% milli ára, eða 6,2% umfram hækkun launavísitölu á sama tíma. Innheimta eignarskatta nam 5,5 ma.kr. sem er 27% minna en á sama tímabili í fyrra. Þar af námu stimpilgjöld 4 ma.kr. en innheimta þeirra á árinu hefur dregist saman um 18% frá fyrra ári, meðal annars vegna þess að dregið hefur úr skuldbreytingu lána.
Innheimta almennra veltuskatta gefur nokkuð góða mynd af þróun innlendrar eftirspurnar. Hún nam 82 ma.kr. á fyrri helmingi ársins og jókst um 10% að nafnvirði frá fyrra ári eða 4% umfram hækkun vísitölu neysluverðs. Tekjur af virðisaukaskatti hafa aukist um rúm 7% sem jafngildir tæplega 2% raunaukningu. Vegna lagabreytingar sem felur í sér rýmri greiðslufrest á virðisaukaskatti og aðflutningsgjöldum fer marktækni samanburðar við fyrra ár eftir því hvaða tímabil innan ársins er til skoðunar en sé litið á hreyfanlegt meðaltal nokkurra mánuða kemur fram að verulega hefur hægt á raunvexti tekna af sköttum sem lagðir eru á vöru og þjónustu. Af helstu einstökum liðum veltutengdra skatta er enn mest aukning í vörugjöldum af ökutækjum en þau skiluðu 15% meiri tekjum en á sama tíma í fyrra. Nýskráningar bifreiða á fyrri helmingi ársins voru 4,4% fleiri en á sama tíma 2005.
Greidd gjöld nema 153,2 milljörðum króna og hækka um 1,3 milljarða milli ára, eða 0,8%. Vaxtagreiðslur lækka um 7,7 milljarða, einkum vegna þess að stór flokkur spariskírteina var á innlausn í apríl í fyrra. Að vöxtum undanskildum hækka gjöldin um 8,9 milljarða eða um 6,1%. Mest munar um 2,5 milljarða hækkun heilbrigðismála og 1,9 milljarða í almannatrygginga- og velferðarmálum. Þá hækka greiðslur til menntamála um 1,6 milljarða. Samtals vega þessir þrír málaflokkar tæplega ⅔ af heildargjöldum ríkissjóðs fyrir utan vexti. Greiðslur vegna almennrar opinberrar þjónustu hækka um 1,3 milljarða og greiðslur til löggæslu hækka um 1 milljarð milli ára. Greiðslur til efnahags- og atvinnumála standa í stað milli ára.
Lántökur ársins nema 16,2 milljörðum króna en afborganir lána eru 38,9 milljarðar. Mismunurinn er fjármagnaður með handbæru fé frá rekstri.
Eiginfjárframlag ríkisins í Nýsköpunarsjóði var aukið um einn milljarð króna á árinu og tveir milljarðar voru greiddir til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins í því skyni að lækka framtíðarskuldbindingar ríkissjóðs.
Tekjur ríkissjóðs janúar–júní 2006
|
Í milljónum króna |
|
Breyting frá fyrra ári, % |
||||
|
2004 |
2005 |
2006 |
2004 |
2005 |
2006 |
|
Skatttekjur og tryggingagjöld |
124.698 |
148.057 |
172.169 |
|
14,7 |
18,7 |
16,3 |
Skattar á tekjur og hagnað |
42.172 |
48.725 |
65.047 |
|
17,8 |
15,5 |
33,5 |
Tekjuskattur einstaklinga |
30.973 |
34.156 |
38.315 |
|
11,0 |
10,3 |
12,2 |
Tekjuskattur lögaðila |
4.876 |
4.820 |
12.787 |
|
126,0 |
-1,2 |
165,3 |
Skattur á fjármagnstekjur |
6.323 |
9.750 |
13.945 |
|
9,9 |
54,2 |
43,0 |
Eignarskattar |
4.781 |
7.497 |
5.449 |
|
17,2 |
56,8 |
-27,3 |
Skattar á vöru og þjónustu |
62.599 |
74.415 |
81.743 |
|
12,5 |
18,9 |
9,8 |
Virðisaukaskattur |
43.200 |
52.290 |
56.145 |
|
13,6 |
21,0 |
7,4 |
Vörugjöld af ökutækjum |
2.904 |
5.120 |
5.879 |
|
39,5 |
76,3 |
14,8 |
Vörugjöld af bensíni |
3.934 |
3.887 |
4.265 |
|
13,2 |
-1,2 |
9,7 |
Skattar á olíu |
2.273 |
2.603 |
2.903 |
|
14,5 |
14,5 |
11,5 |
Áfengisgjald og tóbaksgjald |
4.823 |
5.129 |
5.338 |
|
2,4 |
6,3 |
4,1 |
Aðrir skattar á vöru og þjónustu |
5.465 |
5.386 |
7.213 |
|
1,6 |
-1,5 |
33,9 |
Tollar og aðflutningsgjöld |
1.430 |
1.511 |
1.601 |
|
19,2 |
5,7 |
5,9 |
Aðrir skattar |
268 |
337 |
375 |
|
. |
26,0 |
11,1 |
Tryggingagjöld |
13.449 |
15.571 |
17.955 |
|
12,3 |
15,8 |
15,3 |
Fjárframlög |
170 |
234 |
306 |
|
-58,9 |
37,7 |
30,9 |
Aðrar rekstrartekjur |
8.692 |
17.010 |
10.065 |
|
-5,6 |
95,7 |
-40,8 |
Sala eigna |
23 |
239 |
287 |
|
- |
- |
- |
Tekjur alls |
133.583 |
165.539 |
182.826 |
|
2,3 |
23,9 |
10,4 |
Gjöld ríkissjóðs janúar-júní 2006
|
Í milljónum króna |
|
Breyting frá fyrra ári, % |
|||
|
2004 |
2005 |
2006 |
2005 |
2006 |
|
Almenn opinber þjónusta |
24.694 |
31.884 |
25.513 |
|
29,1 |
-20,0 |
Þar af vaxtagreiðslur |
8.732 |
14.393 |
6.725 |
|
64,8 |
-53,3 |
Heilbrigðismál |
35.624 |
39.377 |
41.862 |
|
10,5 |
6,3 |
Almannatryggingar og velferðarmál |
32.486 |
32.251 |
34.180 |
|
-0,7 |
6,0 |
Efnahags- og atvinnumál |
19.312 |
19.410 |
19.342 |
|
0,5 |
-0,4 |
Menntamál |
13.873 |
16.329 |
17.917 |
|
17,7 |
9,7 |
Menningar-, íþrótta- og trúmál |
6.441 |
6.366 |
6.933 |
|
-1,2 |
8,9 |
Löggæsla, réttargæsla og öryggismál |
4.253 |
4.387 |
5.398 |
|
3,2 |
23,0 |
Umhverfisvernd |
1.626 |
1.652 |
1.793 |
|
1,6 |
8,5 |
Húsnæðis- skipulags- og veitumál |
91 |
230 |
223 |
|
153,0 |
-3,0 |
Gjöld alls |
138.399 |
151.887 |
153.160 |
|
9,7 |
0,8 |