Hoppa yfir valmynd
1. september 2006 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til kennslu grunnnáms í listdansi

Menntamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um rekstrarstyrki til dansskóla er kenna listdans samkvæmt aðalnámskrár fyrir listdansskóla.

Menntamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um rekstrarstyrki til dansskóla er kenna listdans samkvæmt aðalnámskrár fyrir listdansskóla. Styrkirnir eru ætlaðir til að greiða fyrir kennslu nemenda í grunnnámi í listdansi. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að skólinn hafi hlotið viðurkenningu ráðuneytisins á starfseminni samkvæmt viðmiðum sem ráðuneytið hefur sett, dags. 17. ágúst 2006. Umsókn um rekstrarstyrk þurfa að fylgja upplýsingar um nemendafjölda á hverju stigi grunnnámsins, upplýsingar um kennslustundafjölda og skólagjöld.

Nánari leiðbeiningar um frágang umsókna eru á umsóknareyðublaði sem er á vef ráðuneytisins. Umsóknarfrestur er til 25. september næstkomandi.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta