Hoppa yfir valmynd
12. september 2006 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Nýr ríkisskattstjóri

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 21/2006

Fjármálaráðherra hefur í dag ákveðið að Skúli Eggert Þórðarson, skattrannsóknarstjóri, taki við embætti ríkisskattstjóra frá 1. janúar næstkomandi. Ákvörðun um flutning Skúla Eggerts í embætti ríkisskattstjóra er tekin á grundvelli laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins þar sem kveðið er á um heimild til flutnings embættismanna ríkisins milli starfa.

Skúli Eggert Þórðarson er fæddur árið 1953. Hann er lögfræðingur að mennt. Skúli Eggert var forstöðumaður staðgreiðsludeildar og síðar tekjuskattsdeildar ríkisskattstjóraembættisins á árunum 1987-1990, vararíkisskattstjóri á árunum 1990-1993 og hefur verið skattrannsóknarstjóri frá árinu 1993.

Fjármálaráðherra hefur í dag jafnframt sett Ingvar Rögnvaldsson, vararíkisskattstjóra, til að gegna embætti ríkisskattstjóra frá 1. október næstkomandi, er núverandi ríkisskattstjóri, Indriði H. Þorláksson, lætur af embætti, til áramóta.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum