Hoppa yfir valmynd
13. september 2006 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Nýr aðstoðarmaður ráðherra

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 22/2006

Ármann Kr. Ólafsson aðstoðarmaður fjármálaráðherra hefur ákveðið að láta af störfum síðar í þessum mánuði. Hann hefur gegnt starfi aðstoðarmanns í rúm ellefu ár, fyrst hjá Halldóri Blöndal þáverandi samgönguráðherra og síðan hjá Árna M. Mathiesen í sjávarútvegs- og fjármálaráðuneytinu. Við starfi Ármanns tekur Böðvar Jónsson viðskiptafræðingur og formaður bæjarráðs í Reykjanesbæ.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum