Blaðamannafundur vegna samnings við Ríkisútvarpið um almannaþjónustu
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Páll Magnússon útvarpsstjóri boða til blaðamannafundar klukkan 12 í dag, fimmtudag 28. september 2006, þar sem kynnt verða drög að samningi ráðuneytisins og Ríkisútvarpsins um útvarpsþjónustu í almannaþágu. Fundurinn verður haldinn í húsnæði Ríkisútvarpsins að Efstaleiti 1.