Hoppa yfir valmynd
1. október 2006 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 4/2006

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

  1. Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 15.100
  2. Gisting í einn sólarhring kr. 8.700
  3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 6.400
  4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 3.200

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. nóvember 2006. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 3/2006 dags. 23. maí 2006.

Nefndin fer þess á leit við viðkomandi ráðuneyti að þau kynni efni þessarar auglýsingar þeim stofnunum og fyrirtækjum sem undir þau heyra.

Ennfremur er vakin athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármálaráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi:

Reykjavík, 26. október 2006.

Ferðakostnaðarnefnd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta